Laga­legur fyrir­vari vefsíðu Sjóvár 

Þessi vefsíða er í eigu og undir umsjón Sjóvá-Almennra trygginga hf. (hér eftir „Sjóvá“), kt. 650909-1270, Kringlan 5, 103 Reykjavík. Með því að nota þessa vefsíðu samþykkir notandi eftirfarandi skilmála. 

 

1. Almennt 

Vefsíðan er fyrst og fremst ætluð til almennra upplýsinga um vörur og þjónustu Sjóvár. Einnig getur notanda átt í samskiptum við félagið eftir að hafa skráð sig inn á Mitt Sjóvá eða netspjall. Notendum er því bent á að hafa samband við starfsfólk Sjóvár ef fólk hefur ábendingar um það sem betur má fara. 

 

2. Takmörkun ábyrgðar 

Engar upplýsingar á vefsíðunni fela í sér bindandi tilboð af hálfu Sjóvár nema annað sé tekið sérstaklega fram. Vátryggingar og önnur þjónusta Sjóvár eru háð áhættumati og sérstökum skilyrðum sem taka mið af tryggingategund og hverjum einstaklingi. Notendum er því ráðlagt að hafa samband við starfsfólk fyrir frekari upplýsingar eða tilboð. 


3. Villur eða rangar upplýsingar

Leitast er við að allar upplýsingar sem birtast á vefsíðunni séu réttar, nákvæmar og uppfærðar þegar þörf er á. Sjóvá ber ekki ábyrgð á hugsanlegum innsláttarvillum eða ónákvæmum upplýsingum sem kunna að birtast á síðunni. Ef eitthvert misræmi er milli texta á vefsíðu og skilmála er það viðeigandi skilmáli sem gildir.


4. Þýðingar

Texti á enskri útgáfu vefsíðunnar er að stórum hluta þýðingar unnar af gervigreind, sem yfirfarnar eru af starfsfólki. Ef misræmi er milli enskrar þýðingar og íslenskra skilmála þá gildir skilmálinn.


5. Fjárhagsupplýsingar 

Upplýsingar um fjárhag Sjóvár á vefsíðu, ætlaðar fjárfestum eða hluthöfum, eru veittar í upplýsingaskyni og án ábyrgðar á nákvæmni þeirra. Bent er á að opinberar tilkynningar um fjárhagsmálefni félagsins er að finna í fréttakerfi Kauphallar Íslands. 

 

6. Höfundarréttur og endurbirtingar 

Nema annað sé tekið fram eru allar upplýsingar á vefsíðunni eign Sjóvár. Endurbirting efnis, hvort sem er að hluta eða í heild, er óheimil nema með fyrirframgefnu samþykki Sjóvár. Brot á því kunna að leiða til lagalegra viðurlaga í samræmi við höfundalög. 


7. Persónuvernd 

Á ákveðnum svæðum vefsíðunnar geta notendur skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og gefið upp persónuupplýsingar. Þær uppgefnu upplýsingar eru unnar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Notendur geta óskað eftir afriti af upplýsingum um sig hjá Sjóvá hér og er sérstaklega bent á að kynna sér persónuverndarstefnu félagsins.


8. Slóðir á utanaðkomandi vefsíður 

Vefsíðan getur innihaldið tengla á utanaðkomandi vefsíður. Sjóvá ber ekki ábyrgð á virkni þessara tengla eða efni á vefsíðum sem þeir vísa til. 

 

9. Lögsaga og gildissvið 

Þessi vefsíða og notkun hennar falla alfarið undir íslensk lög og íslenska dómstóla.